Vesturbyggð
Vesturbyggð | |
---|---|
Hnit: 65°35′53″N 24°00′07″V / 65.598°N 24.002°V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Norðvesturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Gerður Björk Sveinsdóttir [1] |
Flatarmál | |
• Samtals | 1.511 km2 |
• Sæti | 23. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 1.356 |
• Sæti | 30. sæti |
• Þéttleiki | 0,9/km2 |
Póstnúmer | 450, 451, 460, 465 |
Sveitarfélagsnúmer | 4604 |
Vefsíða | vesturbyggd |
Vesturbyggð er sveitarfélag á sunnanverðum Vestfjörðum. Það varð til 11. júní 1994 við sameiningu fjögurra sveitarfélaga: Barðastrandarhrepps, Rauðasandshrepps, Bíldudalshrepps og Patrekshrepps. Upphaflega var sameiningartillaga við Tálknafjarðarhrepp felld en árið 2023 var aftur kosið um sameiningu og var hún samþykkt[2][3] og er því Vesturbyggð eina sveitarfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum. Sveitarfélagið nær yfir alla suðurfirði Vestfjarða frá Arnarfirði að Kjálkafirði.
Til Vesturbyggðar teljast byggðakjarnarnir Birkimelur á Barðaströnd, Bíldudalur, Tálknafjörður og Patreksfjörður og sveitirnar Barðaströnd, Breiðavík, Hænuvík, Ketildalir, Látrar, Rauðisandur og Suðurfirðir. Fyrrum voru sex hreppar á suðursvæði Vestfjarða: Barðastrandahreppur, Ketildalahreppur, Patrekshreppur, Rauðasandshreppur, Suðurfjarðahreppur og Tálknafjarðarhreppur.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 19. júní 2024, Vesturbyggð og Gerður Björk ráðin bæjarstjóri Bæjarins Besta
- ↑ 28. október 2023, Sameining: Vesturbyggð samþykkti Bæjarins besta
- ↑ 28. október 2023, Sameining: Tálknafjörður samþykkti Bæjarins besta