Fara í innihald

Múlaþing

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Múlaþing
Lagarfljótið séð frá bakka Fellabæjar í Múlaþingi
Lagarfljótið séð frá bakka Fellabæjar í Múlaþingi
Skjaldarmerki Múlaþings
Staðsetning Múlaþings
Staðsetning Múlaþings
Hnit: 65°15′50″N 14°24′19″V / 65.26389°N 14.40528°V / 65.26389; -14.40528
LandÍsland
KjördæmiNorðausturkjördæmi
Þéttbýliskjarnar
Stjórnarfar
 • SveitarstjóriBjörn Ingimarsson
Flatarmál
 • Samtals10.671 km2
 • Sæti2. sæti
Mannfjöldi
 (2024)
 • Samtals5.177
 • Sæti10. sæti
 • Þéttleiki0,49/km2
Póstnúmer
700, 701, 710, 720, 765
Sveitarfélagsnúmer7400
Vefsíðamulathing.is

Múlaþing er sveitarfélag á Austurlandi sem varð til árið 2020 við sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar.[1]

Það er næststærsta sveitarfélag landsins; 10.671 ferkílómetrar að flatarmáli sem er rúm 10% af flatarmáli Íslands.[2] Það var stærsta sveitarfélagið í rúm 2 ár, frá 2020 til 2022, eða þar til Þingeyjarsveit sameinaðist Skútustaðahreppi.

Kosið var um sameiningu sveitarfélaganna 26. október 2019[3] og Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra staðfesti sameininguna 14. febrúar 2020.[4] Nafnakönnun vegna nýs nafns á sveitarfélaginu fór fram 27. júní 2020[5] og varð Múlaþing hlutskarpast.[6] Sveitarstjórn samþykkti svo nafnið formlega 14. október 2020.[7]

Úrslit sameiningarkosninga

[breyta | breyta frumkóða]
Sveitarfélag % Nei % Þátttaka
Borgarfjörður 44 65,7 17 25 71,6 %[8]
Djúpivogur 156 63,7 87 35,5 78 %[9]
Fljótsdalshérað 1291 92,9 84 6 53,5 %[10]
Seyðisfjörður 312 86,6 45 12,5 70,7 %[11]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Takast á fyrir sveitarstjórnarkosningar á Austurlandi Rúv, skoðað 16. desember 2020.
  2. Nýtt sveitarfélag Múlaþing.is, skoðað 18. des. 2020
  3. Sameining á Austurlandi samþykkt mbl.is, skoðað 28. maí 2021
  4. Sameining fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi staðfest Stjórnarráð Íslands, skoðað 28. maí 2021
  5. Greiða at­kvæði um nafn á sam­einuðu sveitar­fé­lagi á morgun visir.is, skoðað 28. maí 2021
  6. Múlaþing varð ofan á í nafnakönnun nýs sveitarfélags visir.is, skoðað 28. maí 2021
  7. Nafnið Múlaþing samþykkt samhljóða Geymt 2 júní 2022 í Archive.today Múlaþing.is, skoðað 28. maí 2021
  8. „Sameining samþykkt á Borgarfirði“. Sótt 29. júní 2020.
  9. „Sameining samþykkt á Djúpavogi“. Sótt 29. júní 2020.
  10. „Sameining samþykkt á Fljótsdalshéraði“. Sótt 29. júní 2020.
  11. „Sameining samþykkt á Seyðisfirði“. Sótt 29. júní 2020.