Grýtubakkahreppur
Útlit
Grýtubakkahreppur | |
---|---|
Hnit: 65°56′56″N 18°11′56″V / 65.9488876°N 18.1988985°V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Norðausturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | Grenivík |
Stjórnarfar | |
• Sveitarstjóri | Þröstur Friðfinnsson |
Flatarmál | |
• Samtals | 431 km2 |
• Sæti | 36. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 396 |
• Sæti | 52. sæti |
• Þéttleiki | 0,92/km2 |
Póstnúmer | 601, 610 |
Sveitarfélagsnúmer | 6602 |
Vefsíða | grenivik |
Grýtubakkahreppur er sveitarfélag við austanverðan Eyjafjörð. Það nær frá Víkurskarði norður alla Látraströnd en byggð er mest í kringum Höfða og þar er sjávarþorpið Grenivík. Yfir Grenivík gnæfir fjallið Kaldbakur.
Grýtubakkahreppur tilheyrir Suður-Þingeyjarsýslu fremur en Eyjafjarðarsýslu samkvæmt hefðbundinni sýsluskiptingu landsins. Í kosningum um sameiningu sveitarfélaga sem fram fóru 8. október 2005 höfnuðu íbúar hreppsins tillögu um sameiningu allra sveitarfélaga við Eyjafjörð með miklum meirihluta, einungis 2 voru samþykkir tillögunni af þeim 256 sem greiddu atkvæði.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Grýtubakkahrepp.