Suðurkjördæmi
Þingmenn
|
|
---|---|
Mannfjöldi | 65.009 (2024) |
Sveitarfélög | 19 |
Kjósendur
|
|
Kjörsókn | 79,1% (2021) |
Núverandi þingmenn | |
Suðurkjördæmi er eitt af kjördæmum Íslands. Það hefur 10 sæti á Alþingi, þar af eitt jöfnunarsæti. Kjördæmið er hið gamla Suðurlandskjördæmi að viðbættum Hornafirði sem áður tilheyrði Austurlandskjördæmi og Suðurnesjum sem áður voru í Reykjaneskjördæmi. Kjördæmið var myndað með nýrri kjördæmaskipan árið 2000, en fyrst var kosið samkvæmt þeirri skipan í Alþingiskosningum 2003.
Sveitarfélög
[breyta | breyta frumkóða]Í Suðurkjördæmi eru sveitarfélögin: Sveitarfélagið Hornafjörður, Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Vestmannaeyjabær, Flóahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grindavíkurkaupstaður, Suðurnesjabær, Reykjanesbær og Sveitarfélagið Vogar.
Kosningatölfræði
[breyta | breyta frumkóða]Kosningar | Kjósendur á kjörskrá |
Breyting | Greidd atkvæði |
Kjörsókn | Utankjörfundar- atkvæði |
Þingsæti | Kjósendur á hvert þingsæti |
Vægi[1] | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Fjöldi | Hlutfall greiddra | ||||||||
2003 | 28.344 | á ekki við | 25.343 | 89,4% | 2.200 | 8,7% | 10 | 2.834 | 118% |
2007 | 30.592 | 2.248 | 25.789 | 84,3% | 2.732 | 10,6% | 10 | 3.059 | 115% |
2009 | 32.482 | 1.890 | 27.831 | 85,7% | 3.048 | 11,0% | 10 | 3.248 | 111% |
2013 | 33.619 | 1.137 | 27.531 | 81,9% | 3.889 | 14,1% | 10 | 3.362 | 112% |
2016 | 35.436 | 1.817 | 27.828 | 78,5% | 4.109 | 14,8% | 10 | 3.544 | 110% |
2017 | 36.143 | 707 | 28.914 | 80,0% | 4.690 | 16,2% | 10 | 3.614 | 109% |
2021 | 38.424 | 2.281 | 30.381 | 79,1% | 5.881 | 19,4% | 10 | 3.842 | 105% |
2024 | 40.994 | 2.570 | - | - | - | - | 10 | 4.099 | 104% |
[1] Vægi atkvæða í Suðurkjördæmi miðað við vægi atkvæða á landsvísu. | |||||||||
Heimild: Hagstofa Íslands |