Járnbrautarlest
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/0a/Tren_a_las_nubes_cruzando_Viaducto_la_Polvorilla.jpg/220px-Tren_a_las_nubes_cruzando_Viaducto_la_Polvorilla.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/2a/Landsspitalinn_nielsen.jpg/220px-Landsspitalinn_nielsen.jpg)
![]() |
Það þarf að skrifa þessa grein út frá alþjóðlegu sjónarmiði. Vinsamlegast bættu greinina eða ræddu málið á spjallsíðunni. |
Járnbrautarlest er farartæki, sem ekur eftir teinum. Samanstendur oftast af eimreið með mismarga járnbrautarvagna í eftirdragi. Flestar járnbrautarlestir eru knúnar áfram með díselvél eða rafmagni, sem kemur úr raflínum við teinana. Fyrstu járnbrautarlestirnar voru gufuknúnar eimreiðar og sú tækni var í notkun fram yfir miðja 20. öld.
Járnbrautarlestir á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Fyrsta járnbrautarlestin á á Íslandi var eimreið sem gekk milli Öskjuhlíðar og niður á strönd þegar framkvæmdir stóðu yfir við Reykjavíkurhöfn árin 1913 til 1917. Árið 1928 var hætt að nota hana og síðustu teinarnir voru fjarlægðir á tímum seinni heimstyrjaldarinnar. Járnbrautarlest var einnig notuð við gerð Dalvíkurhafnar á árunum 1939 til 1945[1].
Járnbrautarlestir hafa ekki verið notaðar til almenningssamgangna en einstaka sinnum við stórframkvæmdir eins og á Kárahnjúkum þar sem nokkur slys urðu.
Myndir
[breyta | breyta frumkóða]Sjá einnig
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Wiktionary-logo-is.png/35px-Wiktionary-logo-is.png)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
- ↑ Kristján Sveinsson (2009). Íslenskar hafnir og hafnargerð. Siglingastofunin Íslands.