Vetrarólympíuleikarnir 1964
Útlit
Vetrarólympíuleikarnir 1964 voru vetrarólympíuleikar sem haldnir voru í Innsbruck í Austurríki frá 29. janúar til 9. febrúar árið 1964.
Alls tóku 36 lönd þátt í leikunum. Sovétríkin voru sigursælust með ellefu gullverðlaun. Keppt var í tíu greinum: skíðaskotfimi, bobbsleðabruni, íshokkíi, baksleðabruni (luge), listdansi á skautum, skautahlaupi, alpagreinum, skíðagöngu, norrænni tvíþraut og skíðastökki.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Vetrarólympíuleikunum 1964.