Montreux
Útlit
Montreux | |
---|---|
Kantóna | Vaud/Waadt |
Flatarmál | |
• Samtals | 33,40 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 390 m |
Mannfjöldi | |
• Samtals | 24.579 (31 des 2.010) |
Vefsíða | www.montreux.ch Geymt 30 desember 2017 í Wayback Machine |
Montreux er þriðja stærsta borgin í kantónunni Vaud í Sviss. Hún er þekkt fyrir tónlistarviðburði og afar fagurt fjallaumhverfi.
Lega og lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Montreux liggur við austurenda Genfarvatns, austarlega í kantónunni. Næstu borgir eru Lausanne til vesturs (30 km), Bern til norðurs (80 km) og Sion til suðausturs (70 km). Um 75% íbúanna eru frönskumælandi.
Skjaldarmerki
[breyta | breyta frumkóða]Skjaldarmerki Montreux er samsett úr bæjunum Châtelard og Les Planches. Kirkjan til hægri er aðalkirkjan í Montreux í dag.
Orðsifjar
[breyta | breyta frumkóða]Heitið Montreux er dregið af orðinu monasterium, sem merkir klaustur.
Söguágrip
[breyta | breyta frumkóða]- Á miðöldum tilheyrði borgarsvæðið klaustrinu Saint-Maurice í Valais, seinna biskupnum í Sion.
- 1317 varð svæðið og byggðin eign Savoy.
- 1536 hertók Bern allt svæðið.
- 1803 var svæðið innlimað í nýstofnaðri kantónunni Vaud. Bæirnir voru þrír: Châtelard, Veytaux og Les Planches.
- Síðla á 19. öld urðu bæirnir þekktir ferðamannabæir. Þekktir þjóðhöfðingjar sóttu þá heim, sem og þekktir listamenn.
- 1962 sameinuðust bæirnir Châtelard og Les Planches og fékk nýi bærinn heitið Montreux. Íbúar Veytaux kusu að sameinast ekki nýja bænum.
- Eftir heimstyrjöldina síðari varð Montreux þekktur sem hátíðar- og tónlistarbær.
Viðburðir
[breyta | breyta frumkóða]- Montreux Jazz Festival er mikil tónlistarhátíð í borginni. Hún var fyrst haldin 1967 og tróðu margir frægir jazzarar upp, svo sem Ella Fitzgerald, Aretha Franklin, Count Basie og margir fleiri. Í gegnum árin hafa aðrar tónlistarstefnur, svo sem popp og rokk, haldið innreið sína í hátíðina. Þannig hafa tónlistarmenn og hljómsveitir á borð við Led Zeppelin, Frank Zappa, Simon & Garfunkel, Mike Oldfield, Carlos Santana, Leonard Cohen, Johnny Cash, Van Morrison, Deep Purple, Prince, Muse og margir fleiri leikið og sungið á hátíðinni. Fyrsta hátíðin stóð í þrjá daga. Á síðustu árum hefur hún hins vegar lengst og stendur að jafnaði yfir í rúmar tvær vikur.
- Tónlist. Í Montreux er hljóðver og hafa ýmsar hljómsveitir tekið upp albúm þar. Þar má nefna hljómsveitina Queen, sem um árabil dvaldi í Montreux. Á gönguleiðinni við vatnsbakka Genfarvatns er stytta söngvarans Freddie Mercury en hann dvaldi lengi í Montreux. Minnisvarðinn var reistur eftir andlát hans 1991. Á tónleikum með Frank Zappa árið 1971 í spilavítinu í Montreux gerðist það að kveiknaði í húsinu og brann það niður. Viðstaddir tónleikana var hljómsveitin Deep Purple og sömdu þeir í kjölfarið lagið fræga Smoke on the Water, til minningar um brunann.
- Rose d'Or er heiti á sjónvarpshátíð sem stofnuð var í Montreux 1961. Hér er um sjónvarpsefni að ræða, en eftir sýningar á útvöldu efni eru verðlaunin Gullna rósin veit fyrir besta sjónvarpsefnið. Verðlaunahafar eru oft frá öðrum löndum og meðal verðlaunahafa má nefna Barbra Streisand and other Musical Instruments, The Muppet-Show, The Benny Hill Show, Spitting Image, Mr. Bean, Monty Python og marga fleiri. Hátíðin hefur verið haldin árlega í Montreux frá 1961 til 2004, er hún var flutt til Luzern.
Vinabæir
[breyta | breyta frumkóða]Montreux viðheldur vinabæjatengslum við eftirfarandi borgir:
|
Gallerí
[breyta | breyta frumkóða]-
Montreux að kvöldlagi
-
Spilavítið fræga
-
Kirkjan Saint-Vincent
-
Lituð mynd af Montreux árið 1900
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Montreux.