Edmonton
Útlit
Edmonton er höfuðborg Alberta-fylkis í Kanada. Íbúar stórborgarsvæðisins eru rúm milljón. Edmonton er nyrsta borg Norður-Ameríku með íbúafjölda yfir milljón. North Saskatchewan-áin rennur í gegnum borgina en hún er umkringd stórum grænum svæðum. Calgary, stærsta borg fylkisins, liggur fyrir sunnan Edmonton.
Borgin var stofnuð árið 1795 sem virki fyrir Hudsonflóa-félagið.
Áhugaverðir staðir
[breyta | breyta frumkóða]- Alberta Legislature. Þinghúsið.
- Fort Edmonton Park. Sögusafn um Alberta. Stærsta sinnar tegundar í Kanada.
- West Edmonton Mall. Verslunarmiðstöð (stærsta verslunarmiðstöð heims frá 1981 til 2004).
- Telus World of Science. Vísindasafn
- Edmonton Valley Zoo. Dýragarður.