Steiking
Útlit
Steiking á við að elda mat í olíu eða annarri fitu. Efnafræðilega séð er enginn munur á olíu og fitu, þær hafa bara mismumandi bræðslumörk. Má steikja mat í fitu af mörgum toga, til dæmis jurtaolíu, ólífuolíu, repjuolíu eða einhvers konar dýrafitu. Aðrar olíur eru notaðar við iðnaðarframleiðslu matvæla, til dæmis pálmaolía eða kókosolía, þó að þær séu harðar við stofuhita. Oft notast steikarpanna við steikingu.
Mörg matvæli eru steikt, sem dæmi má nefna franskar, egg, eggjaköku og pönnukökur. Sum matvæli má steikja í sinni eigin fitu, t.d. beikon eða steik.