Kúmkvat
Þessi grein þarfnast yfirlestrar, hér gæti þurft að laga málfar, stafsetningu, og/eða framsetningu. Þú getur hjálpað til og lagfært greinina. Gott er að hafa handbókina til hliðsjónar. |
Kúmkvat | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Kúmkvat ávextir
| ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Citrus japonica (Thunb.) |
Kúmkvat (einnig nefnt egglaga gullappelsína[1]) er ávöxtur sítrustrésins Citrus japonica. Ávaxatréð er lágvaxið og er talið vera upprunnið í Kína.[2][3] Aldinkjötið er þurrt en bragðmikið. Hýðið er bragðsterkt og er borðað með ávextinum.
Uppruni
[breyta | breyta frumkóða]Kúmkvattréð er upprunalega frá Suður-Asíu og fyrstu heimildir um ávöxtinn finnast í ritum frá Kína frá 12. öld. Trén hafa skotið rótum á Indlandi, Japan, Taívan, Filippseyjum og Suður-Asíu. Tréð var flutt til Evrópu árið 1846 og stuttu seinna til Norður-Ameríku.
Kúmkvattré eru sígræn, hægvaxta tré sem verða 2,4-4,5 metrar á hæð. Greinarnar eru ljósgrænar meðan þær eru ungar en verða brúnar með aldrinum. Laufin eru einföld að lögun og líkjast öðrum sítrusalaufblöðum. Þau eru dökkgræn og gljáandi að ofan en ljósgræn að neðan. Laufin eru um 3,25-8,6 sentimetrar að lengd með fína gadda frá enda laufblaðsins fram að miðju þess.[3][4]
Blóm kúmkvatstrjánna eru lítil, hvít með fimm krónublöð. Blómin geta verið stök eða allt að fimm í hnapp.
Undirtegundir
[breyta | breyta frumkóða]Flokkun sítrustegunda er verulega á reiki og það sem hér er sett sem undirtegundir geta, eftir flokkun, verið afbrigði, sjálfstæðar tegundir eða jafnvel í sérstakri ættkvísl.[5]
Kúlulaga kúmkvat
[breyta | breyta frumkóða]Kúlulaga kúmkvat (Citrus japonica eða Fortunella japonica eftir flokkun), líka kallað marumi, var fyrst lýst 1784. Það kom til Flórida frá Japan árið 1885. Ávöxturinn er kúlulaga og verður um 3,2 cm. að þvermáli. Hver ávöxtur hefur 1-3 fræ sem eru minni en fræ frá nagami-ávextinum. Tréð er mjög líkt nagami-undirtegundinni, en hefur gadda, minni lauf og þolir kalt veður miklu betur.[3]
Egglaga kúmkvat
[breyta | breyta frumkóða]Egglaga kúmkvat (Citrus margarita eða Fortunella margarita) líka kallað nagami kom frá Kína til London árið 1846 með Robert Fortune. Plantan er sögð hafa fundist í Norður-Ameríku árið 1850. Þá kom hún til Flórida frá Japan árið 1885. Ávöxturinn er egglaga, allt að 4,5 cm langur og 3 cm breiður. Ávöxturinn hefur 2-5 fræ og er í blóma frá október fram í janúar. Trén gefa af sér 3.000 til 3.500 ávexti eftir hvert blómgunarskeið. Þetta er algengasta tegundin af kúmkvat sem er nýtt til matvælaframleiðslu í Bandaríkjunum.[3]
Meiva-kúmkvat
[breyta | breyta frumkóða]Meiva-kúmkvat (Citrus crassifolia eða Fortunella crassifolia) er með egglaga ber og þykk blöð.
Hong Kong-kúmkvat
[breyta | breyta frumkóða]Hong Kong-kúmkvat (Citrus hindsii eða Fortunella hindsii) er með lítil aldin á stærð við baunir, sem eru bitur og súr.
Jinagsu-kúmkvat
[breyta | breyta frumkóða]Jiangsu-kúmkvat (Citrus obovata eða Fortunella obovata) gefur líka af sér æta ávexti. Ávextirnir eru kúlu- eða bjöllulaga og verða appelsínugulir þegar þeir eru tilbúnir til átu. Þessi stofn er auðveldlega aðgreindur frá öðrum kúmkvatsstofnum þökk sé hringlaga laufblöðum sem finnast ekki á öðrum kúmkvattrjám. Ólíkt kúlulaga kúmkvat þolir þessi stofn ekki frost.[3]
Malaja-kúmkvat
[breyta | breyta frumkóða]Malaja-kúmkvat (Fortunella polyandra eða Fortunella swinglei; jafnvel Citrus x swinglei) er hugsanlega blendingur við límónu, svokallað læmkvat. Mikið notað í Malasíu sem limgerðisplanta. Berið er stærra en á öðrum undirtegundum kúmkvats.
Veðurfar
[breyta | breyta frumkóða]Egglaga kúmkvattré geta staðist mikið frost, þó svo að tegundin hafi það miklu betur við hærri hitastig. Á sumrin þurfa trén hitastig við 26-37 ºC. Þau geta samt staðist allt að 12 gráðu frost og er kúmkvat því ein harðgerasta sítrustegundin sem fyrirfinnst.[6][3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Dóra Hafsteinsdóttir. 2002. Matarorð úr jurtaríkinu.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 12. febrúar 2020. Sótt 30. nóvember 2018.
- ↑ 3,0 3,1 3,2 3,3 3,4 3,5 Morton, J, „Fruits of warm climates“[óvirkur tengill], 30. nóvember 2018
- ↑ https://www.rhs.org.uk/Plants/83394/i-Citrus-japonica-i-(F)/Details], 30. nóvember 2018
- ↑ Ollitrault, Patrick; Curk, Franck; Krueger, Robert (2020). „Citrus taxonomy“. Í Talon, Manuel; Caruso, Marco; Gmitter, Fred G, Jr. (ritstjórar). The Citrus Genus. Elsevier. bls. 57–81. doi:10.1016/B978-0-12-812163-4.00004-8. ISBN 9780128121634. S2CID 242819146.
- ↑ Wikipedia citrus, sótt 30 nóvember 2018