Jules Verne
Jules Gabriel Verne (8. febrúar 1828 – 24. mars 1905) var franskur rithöfundur, skáld, leikskáld og brautryðjandi á sviði vísindaskáldsagna.
Samstarf Verne og útgefandans Pierre-Jules Hetzel leiddi til útgáfu gríðarvinsællar bókaraðar um „ótrúlegu ferðirnar“ (Voyages extraordinaires), yfir 50 skáldsagna um ímyndaða könnunarleiðangra. Meðal þekktustu sagnanna í þessum flokki eru Leyndardómar Snæfellsjökuls (1864), Tunglflaugin (1865), Sæfarinn: Ferðin kring um hnöttinn neðansjávar (1870) og Umhverfis jörðina á 80 dögum (1873).
Verne er einn af þekktustu rithöfundum heims og verk hans höfðu mikil áhrif á framúrstefnuhöfunda 20. aldar í Frakklandi. Í hinum enskumælandi heimi var hins vegar lengi litið á hann sem höfund barnabóka eða furðusagna af því þýðingar á verkum hans komu oft út í styttum útgáfum.
Frá 1979 hefur Verne verið í öðru sæti yfir mest þýddu höfunda heims, á eftir Agöthu Christie. Hann hefur stundum verið nefndur „faðir vísindaskáldsögunnar“ ásamt H. G. Wells og Hugo Gernsback.