Ian Anderson
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d0/Ian_Anderson_-_Jethro_Tull_live_in_Cambridge_23rd_April_2024_%2853688414617%29.jpg/220px-Ian_Anderson_-_Jethro_Tull_live_in_Cambridge_23rd_April_2024_%2853688414617%29.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/24/Ian_Anderson.jpg/220px-Ian_Anderson.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/1a/Ian-Anderson_Cropredy.jpg/220px-Ian-Anderson_Cropredy.jpg)
Ian Scott Anderson (fæddur 10. ágúst 1947 í Dunfermline, Skotlandi) er breskur tónlistarmaður og er best þekktur fyrir verk sín með hljómsveit sinni Jethro Tull.
Anderson flutti frá Edinborg til Blackpool þegar hann var 11 ára. Í Blackpool sótti hann listaskóla frá 1964-1966. Fyrstu hljómsveit sína stofnaði hann árið 1963, The Blades, sem var soul og blús band. En nokkrir meðlimir hljómsveitarinnar héldu áfram í Tull.
Anderson syngur, spilar á flautu og gítar. En þar að auki hefur hann gripið í önnur hljóðfæri eins og hljómborð, mandólín, bouzouki, balalaika, saxófón, munnhörpu og ýmsar aðrar flautur. Hann er þekktur fyrir að standa stundum á einum fæti þegar hann spilar á flautuna. Að eigin sögn byrjaði hann að því fyrir slysni og fékk síðar að vita af guðum austrænna trúarbragða sem spiluðu á flautu og stóðu einnig á einum fæti.
Samhliða Jethro Tull hefur hann gefið út nokkrar sólóplötur, þar á meðal framhaldið af plötunni Thick as a Brick (1972), eða Thick as a Brick II. Árið 2014 kom út tónleikaplatan Thick as a Brick - Live in Iceland sem er frá tónleikum í Hörpu.
Punktar
[breyta | breyta frumkóða]- Platan A frá 1980 var fyrirhuguð sem sólóplata Andersons en plötuútgáfufyrirtæki hans þrýsti á hann að nota Tull nafnið.
- Árið 2011 spilaði Anderson flautudúett með geimfaranum Cady Coleman sem staddur var í Alþjóðageimstöðinni í tilefni þess að 50 ár voru síðan Júrí Gagarín fór í fyrstu mönnuðu ferðina út í geim.
- Anderson á hús í Englandi og á skosku eyjunni Skye en þar reyndi hann fyrir sér sem laxabóndi á 9. áratugnum þegar hann tók sér hlé frá tónlist.
- Árið 2020 tjáði Ian að hann þjáðist af langvinnri lungnateppu.
- Anderson var sögumaður á plötu sænsku þungarokkssveitarinnar Opeth, The Last Will and Testament (2024).
Sólóplötur
[breyta | breyta frumkóða]- Walk into Light (1983)
- Divinities: Twelve Dances with God (1995)
- The Secret Language of Birds (2000)
- Rupi's Dance (2003)
- Thick as a Brick 2 (2012)
- Homo Erraticus (2014)
- Jethro Tull - The String Quartets (2017)
Tónleikaplötur
[breyta | breyta frumkóða]- Ian Anderson Plays the Orchestral Jethro Tull (2005)
- Thick as a Brick - Live in Iceland (2014)
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Fyrirmynd greinarinnar var „Ian Anderson“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 3. ágúst 2016.