Eden (Hveragerði)
Útlit
Eden var garðyrkjustöð og söluskáli í Hveragerði sem var lengi einn vinsælasti viðkomustaður ferðalanga á Suðurlandi.
Bragi Einarsson garðyrkjufræðingur reisti garðskála og greiðasölu í Hveragerði árið 1958 að bandarískri fyrirmynd. Hann valdi byggingu sinni stað við þjóðveginn og varð hún skjótt viðkomustaður höfuðborgarbúa í skemmtiferðum austur fyrir fjall. Þar var hægt að kaupa veitingar jafn sem blómplöntur. Nafnið vísaði til aldingarðsins Eden í Biblíunni.
Eden var stækkað nokkrum sinnum og breyttist í tímans rás. Skálinn brann til grunna í eldsvoða þann 22. júlí árið 2011. En þann dag í dag eru uppi áform um endurkomu Eden.
2020 eru íbúðir byggt á Edenreit.[1]
Heimildir og tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Mikið er byggt og íbúunum fjölgar“. Morgunblaðið. 7. september 2020.
- Sigurveig Jónsdóttir & Helga Guðrún Johnson (2014). Það er kominn gestur: saga ferðaþjónustu á Íslandi. Samtök ferðaþjónustunnar. ISBN 978-9935-10-057-3.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Category:Eden, Hveragerði.