Hunang
Útlit
Hunang er gulleitur seigfljótandi sætur vökvi sem býflugur og önnur skordýr vinna úr blómasafa, plöntusafa og safa sem önnur skordýr sem sjúga plöntur seyta. Hunang er notað í matargerð, til að brugga mjöð og við náttúrulækningar. Til eru margar tegundir af hunangi, en bragð þess mótast öðru fremur af umhverfi býflugnabúsins, t.d. því hvaða tegundir blómplantna eru ríkjandi í næsta nágrenni.
Lengi vel var hunang nær eina sætuefnið sem notað var í Evrópu.
Tenglar
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist hunangi.