Fara í innihald

Spjall:Gottlob Frege

Innihald síðu er ekki stutt á öðrum tungumálum.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Nokkrar staðhæfingar og nöfn í þessari grein koma ekki heim og saman við þær upplýsingar sem ég hef úr formála Undirstöðum reikninslistarinnar í útgáfu HÍB. Sá formáli er eftir Guðmund Heiðar Frímannsson og í honum segir (á bls. 13) að mótsögnin sem Russel hafi bent á sé í fyrra bindi bókarinnar „Frumreglur Reikningslistarinnar“ (Grundgesetze der Arithmetik). Það er ekki í samræmi við þessa grein sem segir að mótsögnin hafi leynst í fyrra bindi „Undirstöður Reikningslistarinnar“ (Die Grundlagen der Arithmetik), í fyrsta lagi kom „Undirstöður Reikningslistarinnar“ ekki út í tveimur bindum og í öðru lagi heitir hún Die Grundlagen der Arithmetik ekki „Die Grundlegung der Arithmetik“, og kom út árið 1884, ekki 1893 sem er útgáfuár „Frumreglur Reikningslistarinnar“. Hér er greinilega um einfaldan misskilning að ræða. Ég tók mér því það bessaleyfi að breyta greininni aðeins. --Satúrnus 01:37, 6 október 2006 (UTC)

Ég tók aftur breytinguna af því að mér sýndist þú vera að gera einhverja dellu, en þeta er rétt hjá þér þannig að ég tók aftur afturtökuna. --Cessator 02:12, 6 október 2006 (UTC)

Byrja umræðu um Gottlob Frege

Byrja nýja umræðu