Fara í innihald

Miðeind

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Miðeind (enska: Meson) er eind samsett úr pari kvarka og andkvarka og flokkast því til sterkeinda. Miðeindir hafa heiltöluspuna og eru því bóseindir og hafa auk þess sterka víxlverkun. Sumar miðeindir hafa rafhleðslu. Þekktastar eru π-miðeindir.