Fara í innihald

Georg Friedrich Bernhard Riemann

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ljósmynd af Georg Friedrich Bernhard Riemann sem tekin var árið 1868.

Georg Friedrich Bernhard Riemann (17. september 182620. júlí 1866) var þýskur stærðfræðingur sem var stórt nafn í stærðfræðisögu 19. aldar. Á ýmsan hátt má telja hann arftaka Gauss á vitsmunasviðinu. Í rúmfræði hóf hann þróun þeirra aðferða, sem Einstein notaði síðar til þess að lýsa alheiminum. Grunnhugmyndir hans í rúmfræði koma fram í innsetningarræðu hans við háskólann í Göttingen. Þar var Gauss á meðal áheyrenda. Hann átti stóran þátt í þróun heildunar og nafn hans lifir í Riemann heildinu, einnig í svokölluðum Cauchy-Riemann jöfnum og Riemannflötum. Hann fann einnig samband á milli frumtalna og stærðfræðigreiningar, setti fram Riemann tilgátuna, sem fjallar um hið dularfulla -fall (Zetufall Riemanns) og er enn ósönnuð, en gæti gefið mikilvægar upplýsingar um dreifingu frumtalna í .