Doctor Who

Doctor Who er vísindaskáldsögusjónvarpsþáttur sem er framleiddur af BBC. Þættirnir fjalla um „doktorinn“ sem er tímalávarður utan úr geimnum. Hlutverk hans er að vernda jörðina og aðrar plánetur og íbúa þeira í nútíð, framtíð og fortíð. Doktorinn getur bjargað sér frá dauða en við það breytist útilit hans og persónuleiki. Doktorinn fær oftast jarðarbúa í lið með sér sem ferðafélaga. Tímavél og farartæki doktorsins kallast Tardis og lítur út eins og breskur lögregluklefi. Tardis stendur fyrir „Time And Relative Dimension in Space“.
Þættirnir eru með langlífustu sjónvarpsþáttum heims sem ganga út á vísindaskáldskap. Þeir hófu göngu sína þremur árum áður en framleiðsla Star Trek-þáttanna hófst. Alls hafa verið sýndir í breska sjónvarpinu 884 þættir í 40 þáttaröðum; en það er samanlagður fjöldi gömlu þáttanna, sem fyrst voru sýndir á árunum 1963–1989, og nýju þáttanna sem sýndir hafa verið frá árinu 2005. Í gömlu þáttunum skiptist hver saga niður á tvo til sex þætti sem hver var 25 mínútur að lengd. Í nýju þáttaröðunum er hver þáttur 45 mínútur. Flestir þeirra eru heil saga, en nokkrir framhaldssaga í tveimur þáttum. Alls eru 97 af elstu þáttunum (aðallega úr þáttaröðum 3, 4 og 5) taldir glataðir, þar sem BBC eyddi reglulega gömlu sjónvarpsefni úr safni sínu. Tekist hefur að finna nokkra eldri þætti hjá erlendum sjónvarpsstöðvum. Sumir af þessum týndu þáttum hafa verið endurgerðir sem teiknimyndir út frá varðveittum hljóðrásum og handritum.[1]
Þættirnir um Doctor Who hafa lengi notið mikilla vinsælda í Bretlandi og víðar og eru mikilvægur hluti af breskri afþreyingarmenningu. Vinsældir elstu þáttanna voru slíkar að talað var um „Dalekaæðið“ á 7. áratugnum. Þeir hafa haft áhrif á nokkrar kynslóðir breskra sjónvarpsáhorfenda, og getið af sér myndasögur, skáldsögur og útvarpsþætti. Aðrar sjónvarpsþáttaraðir sem Doctor Who gat af sér eru Torchwood (2006–2011), The Sarah Jane Adventures (2007–2011), K9 (2009–2010) og Class (2016).
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Doctor Who voru hugsaðir sem fræðandi fjölskylduþættir þar sem vísindaleg þekking og frægir atburðir úr mannkynssögunni væru kynnt með sögum um tímaflakk.[2] Fyrsti þátturinn var sýndur á BBC Television Service klukkan 17:16:20 þann 23. nóvember 1963. Útsendingin tafðist um rúma mínútu vegna fréttatilkynninga um morðið á John F. Kennedy daginn áður.[3] Þættirnir voru á dagskrá vikulega og hver þáttur var 25 mínútur að lengd. Undirbúningur hafði staðið í ár á undan. Yfirmaður leikins efnis hjá BBC, Sydney Newman, bar ábyrgð á framleiðslu þáttanna og hann skrifaði fyrstu lýsinguna á þeim, ásamt Donald Wilson úr handritadeild og C. E. Webber handritshöfundi. Wilson hélt því fram í viðtali árið 1971 að nafnið væri frá honum komið.[4] Aðrir sem komu að gerð fyrstu þáttaraðarinnar voru handritshöfundurinn Anthony Coburn, ritstjórinn David Whitaker og framleiðandinn Verity Lambert.[2] Upphafslag þáttanna var samið af Ron Grainer, en útfært af raftónlistarkonunni Delia Derbyshire með því að nota stillitóna úr ýmsum tækjum og önnur hljóð sem voru sett saman með því að klippa og afrita segulbönd á mismunandi hraða.[5]
Þann 31. júlí bað Whitaker Terry Nation um að skrifa handrit að fyrsta þættinum með vinnuheitið „The Mutants“ („hinir stökkbreyttu“). Nation skrifaði handritið að því sem varð 2. þáttur Doctor Who sem fjallar um stríð milli hinna herskáu Daleka (sem Nation byggði á þýskum nasistum) og hinna friðelskandi Thals. Þegar Wilson fékk handritið hafnaði hann því strax, því hann var á móti því að þættirnir snerust um geimskrímsli. Þátturinn var hins vegar framleiddur því samkvæmt Lambert hafði framleiðsluteymið ekkert annað í höndunum. Dalekarnir (líka þekktir sem „hinir stökkbreyttu“) urðu hins vegar svo vinsælir að talað var um „Dalekaæðið“ í Bretlandi á 7. áratugnum.[6] Dalekarnir voru líka fyrsti söluvarningurinn sem BBC framleiddi.[7]
Doktorar
[breyta | breyta frumkóða]Fjórtán leikarar hafa tekið að sér hlutverk doktorsins í sjónvarpsþáttunum. Þegar skipt er um leikara er það skrifað inn í þættina sem endurholdgun doktorsins í kjölfar alvarlegra meiðsla. Nokkrir aðrir leikarar hafa spreytt sig á hlutverkinu í aukaþáttum, kvikmyndum og útvarpsþáttum, meðal annars Peter Cushing, John Hurt, Derek Jacobi og Richard E. Grant.
Eldri þættirnir (1963–1989/1996)
[breyta | breyta frumkóða]Leikari | Þáttaraðir | Fyrsti þáttur | Síðasti þáttur | |
---|---|---|---|---|
![]() |
William Hartnell (fyrsti doktorinn) |
1–4 | S1E1: „An Unearthly Child“ 23. nóvember 1963 |
S4E2: „The Tenth Planet“ 29. október 1966 |
Ferðafélagar | Susan Foreman (Carole Ann Ford), Barbara Wright (Jacqueline Hill), Ian Chesterton (William Russell), Vicki (Maureen O'Brien), Steven Taylor (Peter Purves), Katarina (Adrienne Hill), Dodo Chaplet (Jackie Lane), Polly og Ben (Anneke Wills og Ben Jackson) | |||
![]() |
Patrick Troughton (annar doktorinn) |
4–6 | S4E3: „The Power of the Daleks“ 29. október 1966 |
S6E7: „The War Games“ 21. júní 1969 |
Ferðafélagar | Polly og Ben, Jamie (Frazer Hines), Victoria Waterfield (Deborah Watling), Zoe Heriot (Wendy Padbury) | |||
![]() |
Jon Pertwee (þriðji doktorinn) |
7–11 | S7E1: „Spearhead from Space“ 3. janúar 1970 |
S11E5: „Planet of the Spiders“ 8. júní 1974 |
Ferðafélagar | Liz Shaw (Caroline John), Jo Grant (Katy Manning), Sarah Jane Smith (Elisabeth Sladen) | |||
![]() |
Tom Baker (fjórði doktorinn) |
12—18 | S12E1: „Robot“ 8. júní 1974 |
S18E7: „Logopolis“ 21. mars 1981 |
Ferðafélagar | Sarah Jane Smith, Harry Sullivan (Ian Marter), Leela (Louise Jameson), Romana (Mary Tamm og Lalla Ward), Adric (Matthew Waterhouse), Nyssa (Sarah Sutton), Tegan Jovanka (Janet Fielding) | |||
![]() |
Peter Davison (fimmti doktorinn) |
19–21 | S19E1: „Castrovalva“ 4. janúar 1982 |
S21E6: „The Caves of Androzani“ 16. mars 1984 |
Ferðafélagar | Adric, Nyssa, Tegan Jovanka, Vislor Turlough (Mark Strickson), Peri Brown (Nicola Bryant) | |||
![]() |
Colin Baker (sjötti doktorinn) |
21–23 | S21E7: „The Twin Dilemma“ 22. mars 1984 |
S23E4: „The Ultimate Foe“ 6. desember 1986 |
Ferðafélagar | Peri Brown, Mel Bush (Bonnie Langford) | |||
![]() |
Sylvester McCoy (sjöundi doktorinn) |
24–26 | S24E1: „Time and the Rani“ 7. september 1987 |
S26E4: „Survival“ 6. desember 1989 |
Ferðafélagar | Mel Bush, Ace (Sophie Aldred) | |||
![]() |
Paul McGann (áttundi doktorinn) |
Doctor Who (sjónvarpsmynd) 27. maí 1996 | ||
Ferðafélagar | Grace Holloway (Daphne Ashbrook) |
Nýju þættirnir (frá 2005)
[breyta | breyta frumkóða]Leikari | Þáttaraðir | Fyrsti þáttur | Síðasti þáttur | |
---|---|---|---|---|
![]() |
Christopher Eccleston (níundi doktorinn) |
1 | S1E1: „Rose“ 26. mars 2005 |
S1E13: „The Parting of the Ways“ 18. júní 2005 |
Ferðafélagar | Rose Tyler (Billie Piper), Adam Mitchell (Bruno Langley), Captain Jack Harkness (John Barrowman) | |||
![]() |
David Tennant (tíundi doktorinn) |
2–4 | „The Christmas Invasion“ 25. desember 2004 |
„The End of Time“ 1. janúar 2010 |
Ferðafélagar | Rose Tyler, Mickey Smith (Noel Clarke), Donna Noble (Catherine Tate), Martha Jones (Freema Agyeman) | |||
![]() |
Matt Smith (ellefti doktorinn) |
5–7 | S5E1: „The Eleventh Hour“ 3. apríl 2010 |
„The Time of the Doctor“ 25. desember 2013 |
Ferðafélagar | Amy Pond (Karen Gillan), Rory Williams (Arthur Darvill) | |||
![]() |
Peter Capaldi (tólfti doktorinn) |
8–10 | S8E1: „Deep Breath“ 23. ágúst 2014 |
„Twice Upon a Time“ 25. desember 2017 |
Ferðafélagar | Clara Oswald (Jenna Coleman), Nardole (Matt Lucas), Bill Potts (Pearl Mackie) | |||
![]() |
Jodie Whittaker (þrettándi doktorinn) |
11–13 | S11E1: „The Woman who Fell to Earth“ 7. október 2018 |
„The Power of the Doctor“ 23. október 2022 |
Ferðafélagar | Graham O'Brien (Bradley Walsh), Ryan Sinclair (Tosin Cole), Yasmin Khan (Mandip Gill) | |||
![]() |
David Tennant (fjórtándi doktorinn) |
Sérþættir | „The Star Beast“ 23. október 2022 |
„The Giggle“ 9. desember 2023 |
Ferðafélagar | Donna Noble | |||
![]() |
Ncuti Gatwa (fimmtándi doktorinn) |
14– | „The Church on Ruby Road“ 25. desember 2023 |
|
Ferðafélagar | Ruby Sunday (Millie Gibson) |
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Nathan Graham-Lowery (12. desember 2024). „Lost Doctor Who Story Featuring Early Companion Exit Coming In New Restoration“. ScreenRant.
- ↑ 2,0 2,1 Howe, David J.; Walker, Stephen James; Stammers, Mark (1992). Doctor Who: The Sixties (paperback. útgáfa). London: Virgin Books. ISBN 0-86369-707-0.
- ↑ „An Unearthly Child“. BBC. 16 ágúst 2012. Afrit af upprunalegu geymt þann 26 júní 2019. Sótt 20. desember 2019.
- ↑ Burk, Graeme (2017). Head of Drama: The Memoir of Sydney Newman. Toronto: ECW Press. bls. 450–1. ISBN 978-1-77041-304-7.
- ↑ Hebblethwaite, Phil (29 júní 2016). „Surprising Facts about BBC Theme Tunes You've Heard Hundreds of Times“. Bbc.co.uk. Afrit af uppruna á 25 júlí 2017. Sótt 12 janúar 2018.
- ↑ „The Dalek Invasion“. BBC. 1. nóvember 2023.
- ↑ Steve Tribe; James Goss (2011). Dr Who: The Dalek Handbook. BBC Books. Random House. ISBN 978-1-84990-232-8. p. 9.