Charlotte Brontë
Útlit
Charlotte Brontë (borið fram /ˈbrɒnti/); (21. apríl 1816 – 31. mars 1855) var enskur skáldsagnahöfundur og ljóðskáld. Hún fæddist í Thornton nærri Bradford í Yorkshire. Hún var elst Brontë-systra. Hún notaðist við höfundarnafnið Currer Bell og skrifaði skáldsögur eins og Jane Eyre sem er ein frægasta skáldsaga enskra bókmennta. Ritverk Brontë-systra eru oft nefnd sem bestu ritverk enskrar tungu.
Skáldsögur
[breyta | breyta frumkóða]- Jane Eyre, kom út 1847
- Shirley, kom út 1849
- Villette, kom út 1853
- The Professor, kom út 1857 eftir lát hennar