Beji Caid Essebsi
Beji Caid Essebsi | |
---|---|
محمد الباجي قائد السبسي | |
Forseti Túnis | |
Í embætti 31. desember 2014 – 25. júlí 2019 | |
Forsætisráðherra | Mehdi Jomaa Habib Essid Youssef Chahed |
Forveri | Moncef Marzouki |
Eftirmaður | Mohamed Ennaceur (starfandi) |
Forsætisráðherra Túnis | |
Í embætti 28. febrúar 2011 – 24. desember 2011 | |
Forseti | Fouad Mebazaa (starfandi) Moncef Marzouki |
Forveri | Mohamed Ghannouchi |
Eftirmaður | Hamadi Jebali |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 29. nóvember 1926 Sidi Bou Saïd, Túnis |
Látinn | 25. júlí 2019 (92 ára) Túnisborg, Túnis |
Stjórnmálaflokkur | Nidaa Tounes (2012–2019) |
Maki | Chadlia Fahrat Essebsi (g. 1958; d. 2019) |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Mohamed Beji Caid Essebsi (29. nóvember 1926 – 25. júlí 2019[1]) var túniskur stjórnmálamaður sem var forseti Túnis frá 31. desember 2014 þar til hann lést þann 25. júlí árið 2019. Hann hafði áður verið utanríkisráðherra landsins frá 1981 til 1986 og forsætisráðherra frá febrúar til desember árið 2011.[2][3]
Essebsi hafði verið virkur í túniskum stjórnmálum í um sex áratugi áður en hann varð leiðtogi landsins í kjölfar lýðræðisvæðingar þess eftir túnisku byltinguna árið 2011.[4] Essebsi var stofnandi stjórnmálaflokksins Nidaa Tounes, sem vann flest sæti í þingkosningum sem haldnar voru í landinu árið 2014. Í desember sama ár vann Essebsi fyrstu forsetakosningarnar sem haldnar voru eftir byltinguna og varð þar með fyrsti lýðræðislega kjörni forseti landsins.[5] Essebsi hlaut um 55 prósent atkvæða á móti sitjandi forseta landsins, Moncef Marzouki.[6]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Forseti Túnis látinn“. RÚV. 25. júlí 2019. Sótt 19. september 2019.
- ↑ "Tunisian PM Mohammed Ghannouchi resigns over protests", BBC News, 27. febrúar 2011.
- ↑ „Tunisian prime minister resigns amid protests“. Reuters (enska). 27. febrúar 2011. Sótt 25. júlí 2019.
- ↑ Carlotta Gall & Lilia Blaise, Béji Caïd Essebsi, President Who Guided Tunisia to Democracy, Dies at 92, New York Times (25. júlí 2019).
- ↑ Parker, Claire; Fahim, Kareem (25. júlí 2019). „Tunisian President Beji Caid Essebsi dies at 92“. Washington Post. Sótt 25. júlí 2019.
- ↑ „Essebsi sigraði í Túnis“. Morgunblaðið. 23. desember 2014. Sótt 19. september 2019.
Fyrirrennari: Mohamed Ghannouchi |
|
Eftirmaður: Hamadi Jebali | |||
Fyrirrennari: Moncef Marzouki |
|
Eftirmaður: Mohamed Ennaceur (til bráðabirgða) |