Fara í innihald

Abbas 2.

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Persneskt veggmálverk sem sýnir Abbas 2.

Abbas 2. (20. desember 163325. september 1666) var keisari (sja) í Safavídaríkinu í Persíu frá 15. maí 1642 til dauðadags. Hann var á barnsaldri þegar hann tók við völdum af föður sínum, Safi, og stjórn ríkisins var því í höndum stórvesírsins Saru Taqi. Saru Taqi barðist gegn spillingu í stjórnkerfinu sem aflaði honum margra óvina og hann var myrtur árið 1645.

Frá fimmtán ára aldri fór Abbas að taka meiri þátt í stjórn landsins, ólíkt föður sínum, og honum tókst að hertaka Kandahar og halda henni gegn árásum Mógúlveldisins.


Fyrirrennari:
Safi 1.
Persakonungur
(1642 – 1666)
Eftirmaður:
Súleiman 1.