Michel Barnier
Michel Barnier | |
---|---|
Forsætisráðherra Frakklands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 5. september 2024 | |
Forseti | Emmanuel Macron |
Forveri | Gabriel Attal |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 9. janúar 1951 La Tronche, Frakklandi |
Þjóðerni | Franskur |
Stjórnmálaflokkur | Les Républicains |
Maki | Isabelle Altmayer (g. 1982) |
Börn | 3 |
Háskóli | ESCP Business School |
Michel Jean Barnier (f. 9. janúar 1951) er franskur stjórnmálamaður og fyrrum embættismaður hjá Evrópusambandinu sem hefur verið forsætisráðherra Frakklands frá 5. september 2024.
Barnier var aðalsamningamaður Evrópusambandsins gagnvart Bretlandi í tengslum við útgöngu Bretlands úr sambandinu (Brexit). Barnier lýsti yfir áhuga á að bjóða sig fram gegn Emmanuel Macron í forsetakosningum Frakklands árið 2022 en hlaut ekki tilnefningu flokks síns.[1]
Macron forseti útnefndi Barnier forsætisráðherra Frakklands þann 5. september 2024. Þá hafði ríkt stjórnarkreppa í Frakklandi eftir þingkosningar í júlí þar sem enginn flokkur eða kosningabandalag vann hreinan meirihluta.[2] Barnier er elsti maður sem hefur tekið við embætti forsætisráðherra Frakklands.[3]
Barnier sat aðeins sem forsætisráðherra í um tvo mánuði þar til franska þingið lýsti yfir vantrausti gegn stjórn hans að undirlagi stjórnarandstöðuflokka bæði til hægri og vinstri.[4] Þingið greiddi atkvæði um vantrauststillögu gegn Barnier þann 4. desember eftir að hann beitti ákvæði í frönsku stjórnarskránni til að knýja gegn fjárlög án samþykktar þingmanna. Eftir vantraustið baðst Barnier lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt en var beðinn að sitja áfram sem leiðtogi starfsstjórnar uns ný stjórn yrði skipuð.[5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Lovísa Arnardóttir (5. september 2024). „Barnier nýr forsætisráðherra Frakklands“. Vísir. Sótt 5. september 2024.
- ↑ Björn Malmquist (5. september 2024). „Michel Barnier útnefndur sem forsætisráðherra Frakklands“. RÚV. Sótt 5. september 2024.
- ↑ „Verður elsti forsætisráðherra Frakka“. mbl.is. 5. september 2024. Sótt 5. september 2024.
- ↑ Ástrós Signýjardóttir (4. desember 2024). „Vantrauststillaga gegn Barnier samþykkt á franska þinginu og stjórnin fallin“. RÚV. Sótt 5. desember 2024.
- ↑ „Barnier segir af sér: Starfsstjórn skipuð“. mbl.is. 5. desember 2024. Sótt 5. desember 2024.
Fyrirrennari: Gabriel Attal |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |