Spjall:Skoll og Hati
Útlit
Tungumálatenglar
[breyta frumkóða]Er hægt að haga tungumálatenglunum þannig að þessi síða sé tengd við Wikidata-hlutinn fyrir bæði Skoll og Hata? Flestar aðrar tungumálaútgáfur eru með sér síður fyrir hvorn úlfinn. Mér finnst ekki ástæða til að hafa þetta þannig, ekki frekar en á síðunum um Huginn og Muninn eða Gera og Freka, því það er bara ávísun upp á tvítekningu þar sem það er ekkert hægt að segja um annan úlfinn sem gildir ekki líka um hinn. TKSnaevarr (spjall) 25. mars 2019 kl. 15:18 (UTC)
- Það er stundum hægt með miklum herkjum að tengja áframsendingarsíður á Wikidata, en það er ekki ætlunin að maður geri það. Hálfgallað kerfi hjá þeim, svona stundum. Er þetta ekki bara fín uppsetning að tengja greinina við Skoll? – Þjarkur (spjall) 25. mars 2019 kl. 16:11 (UTC)
- Jú, jú, svo sem. Ég er aðallega bara að hugsa um að ef einhver kemur á síðuna um Hata á ensku eða öðru tungumáli þá sést ekki í tungumálatenglunum á þeirri síðu að það sé til íslensk síða um efnið. TKSnaevarr (spjall) 25. mars 2019 kl. 18:09 (UTC)